Leita í fréttum mbl.is

Dugur fólks og flokka

Ráðherrann Svandís orðaði það best sjálf í eldhúshúsdagsumræðum í haust..."  Í erfiðleikunum sést best til hvers fólk og flokkar duga..." Það er ömurlegt að sjá forystufólk verkalýðshreyfingar enn og aftur hlaupa upp til handa og fóta þegar ráðherrar umhverfismála vinna vinnuna sína.  Sem betur fer eignuðust Íslendingar í fyrsta sinn ráðherra sem stóð undir nafni sem UMHVERFISRÁÐHERRA þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir tók við því embætti árið 2007 og Svandís Svavarsdóttir hefur hingað til sýnt að hún er ráðherra umhverfis og náttúruverndar.  Það versta sem getur gerst er að í erfiðleikum okkar nú fái virkjanaóðir línulagnakarlar ráðið og vaðið uppi.  Nóg var að slíku í títtnefndu góðæri og erum við vart enn farin að sjá skelfilegar afleiðingar þess.  Nær væri verkalýðsforkólfum að vinna með og styðja sitt félagsfólk í virkja HUGVITÐ í stað þess að einblína á virkjaðar STÓRlausnir sem hafa í för með sér ómældan skaða fyrir náttúru og framtíðarkynslóðir..... Hitt er svo, sem er alveg ótrúlegt að enginn fjölmiðlll pikki upp að ráði ... hvar á svo að fá alla þá orku sem Skúli og co viliji að renni um æðar Suðurvesturlínu?  Kannski dusta rykið af gömlum hugmyndum Einars Ben og virkja Gullfoss?    Ég bendi Skúla á að lesa umhverfisstefnu Samfylkingarinnar, hún er allt önnur en birtist í ræðu forsetisráðherra um síðustu helgi.  Það má með réttu segja að Svandís Svavarsdóttir sé mun frekar að fylgja þeirri stefnu.
mbl.is Svandís veruleikafirrt eða vanhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískar aftökur - nei takk!

Það má vera nokkuð ljóst að nafn Steinunnar var strikað út sökum þess að dagana á undan höfðu kjósendur séð mikla umfjöllun fjölmiðla um styrkveitingar til hennar frá fyrirtækjum.

Fram hefur komið að Steinunn þáði styrki fyrirtækja í tveimur prófkjörum, fyrir borgarstjórnarkosningar 2006 og alþingiskosningar 2007. Það liggur fyrir. Það hefur líka komið fram - en ekki farið hátt - að aðrir einstaklingar í prófkjörum þáðu slíka styrki.

Núverandi ríkisstjórn vill beita sér fyrir því að ALLIR slíkir styrkir verði upplýstir.   Vonandi hefur forystufólk allra flokka kjark til að taka þátt í því. Þá fyrst mun heildarmyndin liggja fyrir og við komist að niðurstöðu um hvernig við viljum að stjórnmálabarátta í þessu landi verði rekin til framtíðar.  Þangað til vona ég að við öll, hvort sem um er að ræða fjölmiðlafólk, bloggara eða aðra, berum gæfu til þess að fara okkur hægt í sleggjudómum og stóryrðum sem virðast hafa þann helsta tilgang að taka fólk "pólitískt" af lífi án þess að heildarmyndin liggi fyrir.  Afar mörgum stjórnmálamönnum, leyfi ég mér að fullyrða, bíður það verkefni ávinna sér traust almennings.  Steinunn hefur notið mikils traust í störfum sínum fyrir Reykvíkinga og landsmenn alla. Hún er alþekkt af heilindum sínum og hugsjónum, störf hennar í stjórnmálum í 14 ár munu vega mjög þungt í því uppgjöri sem framundan er.

 


mbl.is Engar breytingar í RN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munur þess að vera kona í Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki...

Ekki veit ég hví Morgunblaðið kýs að birta ekki neðangreindan úrdrátt úr ræðu "besta vinar síns" né heldur orð hans er hann líkti brottrekstri sínum úr Seðlabanka Íslands við krossfestingu Krists:

 "Útrásarvíkingarnir sem settu Ísland á hliðina áttu eina sameiginlega ósk og hún var að koma Davíð Oddssyni úr Seðlabankanum. Þessa ósk flýtti vinstri stjórnin sér í að uppfylla, væntanlega í þakklætisskyni við víkingana fyrir vel unnin störf í þjóðarþágu."

„Og fyrst þetta forgangsmál ríkisstjórnarinnar og útrásarvíkinganna var farsællega í höfn notaði hún síðustu daga til þess að ræða um nektarsýningar á skemmtistöðum. Auðvitað á ég að vera þakklátur fyrir að ríkisstjórnin hafi ekki sameinað þessi tvö mikilvægu mál sín. Því þá gætu þeir falið mér, þar sem ég er án vinnu, að sjá framvegis um þær nektarsýningar sem fram þurfa að fara á Íslandi. "

Mín afstaða er sú að það er ekki orðum eyðandi á Davíð Oddsson og tel að sú athygli sem sá maður hefur fengið í íslensku samfélagi undanfarna áratugi hafi beinlínis verið skaðleg fyrir lýðræðið í landinu.  En, mér er umhugað um framgang og stöðu kvenna hvar sem þær eru og ég velti því fyrir mér hvernig konum í Sjálfstæðisflokknum leið undir ummælum fyrrum formanns síns um bann við nektarsýningum. 

Sjálfri leið mér afskaplega vel  í dag sem konu, feminista og jafnaðarmanni, er ég kvaddi, í bili,  kvenformann flokks míns og fagnaði annarri konu í embætti formanns.  Og hyllti nýjan varaformann og mótframbjóðanda hans, sem báðir gerði kvenfrelsi að aðalatriði í framboðsræðum sínum.

 En hvernig leið sjálfstæðiskonum og feminískum sjálfstæðismönnum undir ummælum fyrrum formanns síns í dag?  Mér virðist, að í dag, 29. mars 2009, sé himin og haf á milli þess að vera kona og/eða feministi í Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.  Ég vona að hins vegar að þetta verði í síðasta sinn sem klúrinn, aumur og vitfirrtur aulahúmor á kostnað kvenna verði leyfður í ræðustól á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og skora á feminista í flokknum að sjá til þess að svo verði.

 


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öflug þjónusta fyrir gesti okkar á mbl.is

Við sem stóðum að þessum samningi bindum miklar vonir við hann.  Leikhúsin hafa með honum fengið tækifæri til að stunda daglega upplýsingagjöf á öflugasta fréttanetmiðli landsins og að veita gestum sínum aðgang að öllum upplýsingum um starfsemi okkar, á einum stað.  Nú þurfa netverjar ekki lengur að fara á milli fjölda síðna til að ákveða hvaða sýningu á að velja, allar upplýsingar verða á www.mbl.is - Verður spennandi að fylgjast með hvernig leikhúsunnendur bregðast við þessari nýju þjónustu.


mbl.is Allt um leikhúsin á sama stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstarfi við Mbl hleypt af stokkunum

Öll leikhús á Íslandi og Morgunblaðið undirrituðu föstudaginn 14. september tímamótasamning til þriggja ára sem felur í sér stórbætta þjónustu við neytendur hvað varðar upplýsingagjöf um starfsemi leikhúsanna.  Markmið samningsins eru að sjá til þess að neytendur hafi á einum stað bestu fáanlegar upplýsingar á hverjum tíma um sýningadaga leikhúsa, dagskrá og miðasölu og að beina athygli neytenda að netinu og þróa í sameiningu með einum sterkum fjölmiðli, upplýsingagjöf og sölu á leiksýningum.  Að samningnum standa Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenski dansflokkurinn, Íslenska óperan, Landnámsetrið og öll Sjálfstæðu leikhúsin en innan þeirra vébanda eru 57 sjálfstæðir leikhópar. Framvegis birtir Morgunblaðið upplýsingar um sýningar og sýningartíma allra leikhúsa í Morgunblaðinu og hefur auk þess þróað mjög birtingar sömu upplýsinga á www.mbl.is og bætt við fjölmörgum möguleikum fyrir leikhúsin að kynna starfsemi sína fyrir leikhúsunnendum landsins á vefnum. 

Með samstarfinu vilja leikhúsin auðvelda gestum sínum að fá bestu fáanlegu upplýsingar um starfsemi sína í einum fjölmiðli sem er sterkur á prenti jafnt sem á veraldarvefnum. 

Undirrituð hefur ásamt þeim Gunnari Gunnsteinssyni, framkvæmdastjóra Sjálfstæðu leikhúsanna og Júlíu Hannam, markaðsstjóra Þjóðleikhússins, unnið að undirbúningi verkefnisins sem hefur verið ákaflega gefandi og lærdómsríkt.  Morgunblaðið hefur á að skipa frábæru starfsfólki sem tók hugmyndum okkar frá upphafi með opnum huga og hefur unnið með okkur - nánast nótt sem nýtan dag - að því láta verkefnið verða að veruleika.  Að öðrum ólöstuðum hafa þau Gylfi Þór Þorsteinsson og Helga F Edwardsdóttir verið hreint frábær í samstarfi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Ása Richardsdóttir, framkvæmdastjóri Id

 


Hvar liggja tækifærin? - Nýr sjóður Spron verður til – þriðji hluti

Ég hef í tveimur greinum hér í Morgunblaðinu fjallað um fyrirhugaðan  Spron-sjóð sem ætlað er að fjárfesta í menningar- og mannúðarmálum. Í umfjöllun minni hefi ég sérstaklega leitað upplýsinga í Bretlandi um hvernig slíkir sjóðir eru reknir.  Í þriðju og síðustu grein minni velti ég fyrir mér hver þau verkefni eru hér sem sjóðurinn gæti helst látið sig varða. Í Bretlandi hafa rannsóknir sýnt að sjálfstæðir sjóðir af því tagi sem Spron-sjóðurinn verður fjárfesta fyrst og fremst á sex afmörkuðum sviðum:   
  • Félagslegu starfi með aðaláherslu á heilbrigðismál, menntun og þarfir þeirra sem á einhvern hátt hafa farið halloka í samfélaginu.
 
  • Menningu þar sem varðveisla menningararfsins er fyrirferðarmikil, en nú með aukinni áherslu á eflingu lista og skapandi atvinnugreina.
 
  • Vísindum þar sem fjárfesting í rannsóknum er langstærsti hlutinn.
 
  • Náttúruvernd þar sem lögð er áhersla á sjálfbæra þróun og alþjóðlegar skuldbindingar í náttúruverndarmálum.
 
  • Mannúðarstarfi en til þess málaflokks telja Bretar m.a. baráttuna gegn fátækt í heiminum, hamfarahjálp og stríðið gegn útbreiðslu alnæmis.
 
  • Nærumhverfi þar sem endurreisn borgarhverfa er fyrirferðarmikil.
  Flestir geta verið sammála um að á Íslandi megi finna dæmi um verðug verkefni á þeim sviðum sem ofan greinir sem og á ýmsum öðrum sviðum.Það skiptir öllu máli þegar nýtt fjármagn ætlað til menningar og mannúðar kemur inn á markaðinn að rík hugsun sé lögð í hvernig er best að verja því fé og þá sérstaklega, hvernig tryggja megi að það skili sem mestum áhrifum í þágu samfélagsins.  Í fyrstu grein minni færði ég rök fyrir því að sjóðurinn ætti að láta sig varða það sem mest brennur á í samfélaginu hverju sinni og virka sem hvati fyrir breytingar. Með stofnun Spron-sjóðsins kemur nýtt fjármagn inn á markað sem hingað til sem hér eftir mun njóta stuðnings ríkisvalds og sveitarfélaga sem og vera í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga um margvísleg verðug samfélagsverkefni. Spronsjóðurinn er algjör viðbót við það sem fyrir er og á ekki að koma í stað ríkisframlaga eða annarrar fjármögnunar.Slíkur stórsjóður, sem er engum háður, getur orðið sjálfstæð rödd í samfélaginu sem með gjörðum sínum getur gert hið óhugsandi hugsanlegt.  En lykilatriði er að sjóðurinn mun ekki og getur ekki starfað einn að slíkum stórverkefnum.  Samstarf og samtal við stjórnvöld, félagasamtök, stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga skiptir höfuðmáli.  Verði slík framtíðarsýn mótuð til handa sjóðnum  og stjórnvöld, ríki og sveitarfélög sem og félagssamtök, fyrirtæki og stofnanir taka þeirri nálgun fagnandi eru möguleikarnir óendanlega margir. Sem dæmi, er hugsanlegt að sjóðurinn geti
  • hrint í framkvæmd átaki í samvinnu við stjórnvöld sem útrýmir launamisrétti?
  • komið að gjörbyltingu fangelsismála á Íslandi sem leiddi til þess að Ísland yrði fyrirmyndarland hvað varðar aðbúnað fanga?  
  • fjárfest í gjörbreyttri almennri listmenntun barna á grunnskólastigi?
  • staðið að eflingu rannsókna í byggingalist og skipulagsmálum og um leið stuðlað að aukinni vitund almennings almennings um mikilvægi vandaðrar vinnu á þeim sviðum?    
  • lagt því lið að innflytjendur eigi auðveldara en nú með að aðlagast íslensku samfélagi?     
  • orðið drifkraftur í því að íslensk hönnun verði veigamikill þáttur útflutningi Íslendinga?   
  Nú þegar unnið er að stofnun sjóðsins er mikilvægt að fari fram lifandi, kröftug og opin umræða um hlutverk hans og hverju hann gæti áorkað til framtíðar.  Slíkur samfélagssjóður með fjárfestingargetu allt að einum milljarði króna mun hafa burði til að ráðast í verkefni í samvinnu við aðra sem gætu leitt til verulegra framfara í samfélaginu.  Finni sjóðurinn málstað sinn, eru honum allir vegir færir.    
  
Höfundur starfar í listum og er viðskiptavinur Spron        

Einkafjármögnun menningar og mannúðarmála í Bretlandi -Nýr sjóður Spron verður til – annar hluti

SPRON_75ara_silver

Í grein minni sem birtist hér í Morgunblaðinu nýverið skýrði ég afstöðu mína til fyrirhugaðs sjóðs Spron sem ætlað er að fjárfesta í menningar- og mannúðarmálum.Ástæða er til að leita í sarp annarra þjóða um hugmyndir og fyrirmyndir, nú þegar slíkur stórsjóður gæti orðið að veruleika.  Hér verður horft til BretlandsÞar er einkafjármagni til samfélagsverkefna skipt í þrjá mismunandi flokka og hefur hver flokkur sín einkenni.    

Framlög einstaklinga

Framlög einstaklinga vega þungt í árlegum einkastuðningi til menningar og líknar í Bretlandi.   Á síðustu árum hafa svokallaðir „venture philanthropists”  látið að sér kveða í Bretlandi. Þetta eru einstaklingar sem hafa ákveðið að fjárfesta hluta af auð sínum í menningu og mannúðarmálum.  Þeir velja sér verkefni sjálfir og eru virkir þátttakendur í stefnumótun þeirra verkefna sem þeir leggja fé í.  Þeir sækjast ekki eftir fjárhagslegum arði en leggja þeim mun meiri áherslu á arðsemi í gegnum árangur.  Tom Hunter er dæmi um einn slíkan.  Hann er skoskur kaupsýslumaður, tæplega sextugur að aldri, sem hefur lýst því yfir að að hann ætli að yfirgefa þennan heim jafn „slyppur og snauður” og hann fæddist í hann.  Tom Hunter hefur þegar fjárfest tuttugu af hundraði auðæfa sinna í menntun ungra barna í Skotlandi.    

Framlög fyrirtækja

Tvær megin ástæður eru fyrir því að fyrirtæki fjárfesta í menningar og mannúðarmálum.   Fyrst er að telja að fyrirtæki líta svo á að þau beri samfélagsábyrgð og siðferðislega skyldu til að styrkja þörf verkefni.   Á hinn bóginn búa að baki beinar viðskiptaástæður, það er, fyrirtækin ætlast til að fjárfestingin skili ágóða líkt og önnur fjárfesting.  Sá ágóði getur verið með ýmsu móti.  Fyrirtæki kaupa sér „góða ímynd” með því að leggja fé í menningar og samfélagsstarfsemi og verðleggja framlag sitt ákveðnu verði.  Fjárfestingin getur líka verið ætluð sem verkfæri til að hafa áhrif á stjórnvaldsákvarðanir.  Í Bretlandi hafa verið deildar meiningar um hversu langt fyrirtæki hafa gengið í að beita ofangreindum aðferðum.    

Framlög sjóða

Í þriðja lagi eru framlög sjóða eða  „Trust and foundations” sem nýr sjóður Spron myndi falla undir.  Sjóðirnir eru ætíð sjálfseignastofnanir að breskum hætti.    Áætlað er að að um 9.000 slíkir sjóðir séu til í Bretlandi[1] og er það mat þeirra sem hafa rannsakað þróun einkafjármögnunar samfélagsmála að sjóðirnir séu í dag mun framsæknari en aðrir á þessum markaði og skiptir sjálfstæði þeirra þar höfuðmáli.    Þeir eru engum háðir, hvorki hluthöfum, viðskiptavinum, kaupendum né stjórnvöldum.  Þetta gefur þeim frelsi til að vera raunverulegt mótvægi við aðrar fjármögnunarleiðir þar sem hagsmunir annarra eru ætíð í húfi.  Þeir hafa sett fram ný viðmið í stuðningi við samfélagsverkefni og gert kröfu um skýrari markmið verkefna en aðrir.  Þeir gera ekki kröfu um fjárhagslega arðsemi af þeim verkefnum sem þeir taka þátt í en leggja ríka áherslu á árangur og áhrif verkefnanna.  Í auknum mæli taka þeir upp verkefni sem enginn er að sinna, skapa ný verkefni og eru í forystu umræðu um samfélagsbreytingar. Dæmi um verkefni slíkra sjóða eru fjölmörg.  Michael Young var frumkvöðull að mörgum samfélagsverkefnum á 20.öld í Bretlandi og stofnaði meðal annars Bresku neytendasamtökin og Opna háskólann sem í dag er rekinn af breskum stjórnvöldum.  Sjóður sem ber hans nafn einbeitir sér að rannsóknum á breyttu samfélagi og að nýta þær rannsóknir til framfara.   Impetus Trust er dæmi um stóran sjóð sem einbeitir sér að félagslegum fjárfestingum.  Fjárfestingar hans í hverju verkefni nema tugum milljóna króna.  Sjóðurinn tekur þátt í  nýjum  verkefnum í afmarkaðan tíma, oftast í 3 – 5 ár. Hann fjárfestir beint og veitir  rekstrarlega aðstoð.  Sjóðurinn ætlast til þess að verkefnunum sé lokið að ákveðnum tíma liðnum eða að þau verði sjálfbær og lifi áfram án stuðnings Impetus.   Þriðja dæmið er Esmée Fairbarin sjóðurinn sem árlega ver 3,6 milljörðum íslenskra króna til samfélagsverkefna, þar af um 800 milljónum króna til lista.  

Nýr sjóður Spron

Samantektin hér að ofan um breskt menningar- og mannúðarstarf á einkamarkaði er sett fram til að skýra muninn á mismunandi fjárfestingaleiðum á þessum markaði.  Samskonar þróun hefur átt sér stað meðal annarra þjóða en Bretar hafa, ásamt Bandaríkjamönnum, rutt veginn.  Nýr sjóður Spron verður algjör nýjung á Íslandi og henni fylgja spennnandi möguleikar og tækifæri en jafnframt mikil ábyrgð. Það skiptir öllu máli að vel takist til frá upphafi. 

  
Höfundur starfar í listum og er viðskiptavinur Spron 


[1] Tölur frá The Association of Charitable Foundations (ACF)

Fjárfesting í menningu og mannúð - Nýr sjóður Spron verður til - fyrsti hluti

Neðangreind grein eftir undirritaða birtist á miðopnu Morgunblaðsins í dag.  Aðrar tvær greinar um sama efni munu væntanlega birtast þar á næstu dögum....

---------------------------------------------------------------------------- 

Fréttir af  tillögu stjórnar Spron um að breyta sparisjóðnum í hlutafélag vekja athygli.  Nái tillagan fram verður til sjálfstæður sjóður undir merkjum sjálfseignarstofnunar með stofnfé sem nú er metið á um 9 milljarða króna. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki skal megin tilgangur sjálfseignarstofnunarninnar vera sá að „stuðla að viðgangi og vexti í starfsemi sparisjóðsins” en einnig er heimilt að „úthluta af fjármunum sjálfseignastofnunarinnar til menningar og líknamála á starfssvæði sparisjóðsins”. Nýi Spron-sjóðurinn verður langstærsti einstaki sjóður sinnar tegundar í landinu. Ætla má að árleg úthlutun sjóðsins verði hálfur til einn milljarður króna. Enginn sjóður af þessari stærðargráðu er til í landinu. Það er því ástæða til að staldra við og velta fyrir sér þeim möguleikum og tækifærum sem stofnun sjóðsins gefur og hvaða stefnu og skipulag eigi að setja honum.  Nokkur lykilatriði skipta höfuðmáli í fyrstu stefnumótun sjóðsins. 

Málstaðurinn 

Stærsta verkefnið framundan er að þróa og móta hlutverk og sýn sjóðsins. Hver er tilgangurinn?  Hefur hann eitthvert samfélagslegt hlutverk?  Vill hann breyta einhverju?  Vill hann berjast fyrir einhverju?  Málstað? Til að svara þessum spurningum verður að líta til laganna en ekki síður hins samfélagslega framfarahlutverks sem sparisjóðir hafa haft í byggðum landsins.Rétt er að horfa til upprunans um leið og horft er til framtíðar.Hafi sjóðurinn málstað getur hann ekki orðið hlutlaus veitandi fjármagns heldur þvert á móti síkvikt afl sem lætur sig varða það sem mest brennur í samfélaginu hverju sinni og virkar sem hvati fyrir breytingar. Slíkur sjóður, sem er engum háður, getur orðið sjálfstæð rödd í samfélaginu sem með gjörðum sínum getur gert hið óhugsandi hugsanlegt, staðið fyrir framförum og nýsköpun sem ella hefði ekki orðið.   

Fjárfesting

Svari menn þeirri spurningu jákvætt að sjóður sem þessi eigi að hafa málstað er mikilvægt að frá upphafi verði fjárveitingar sjóðsins hugsaðar sem fjárfestingar en ekki styrkur, stuðningur eða úthlutun.  Sjóðurinn á ekki að úthluta fé heldur fjárfesta í verkefnum hvort sem hann gerir það einn og sér eða í samstarfi við aðra.  Sjóðurinn á að standa fyrir félagslegum og menningarlegum fjárfestingum þar sem gerð er krafa um arðsemi en að sú arðsemi verði ekki af fjárhagslegum toga heldur felist í þeim umbótum, breytingum eða framþróun sem verður.  Svona nálgun krefst þess að sjóðurinn og starfsfólk hans séu frumkvöðlar, að þau skapi, stuðli að og leiti upp þau verkefni  sem fjárfest er í um leið og þau er opin fyrir tilboðum og beiðnum annarra um samstarf sjóðsins. Margar fyrirmyndir má finna erlendis um rekstur og stefnumótun sambærilegra sjóða, bæði hvað varðar hlutverk og stefnu en einnig hvernig ávöxtun sjóðsins verði best tryggð.  Í því tilliti skiptir ekki síst máli að skattalöggjöf verði rýmkuð hér á landi hvað varðar fjárfestingar í menningar og mannúðarmálum.  

Sjálfstæði og fagmennska

Samkvæmt lögum um breytingu sparisjóða í hlutafélög eiga sæti í stjórn sjóðs eins og hér um ræðir tveir fulltrúar viðkomandi sveitarfélags, einn fulltrúi tilnefndur af fjármálaráðherra og tveir fulltrúar tilnefndir af viðskiptaráðherra. Stjórnin er með öðrum orðum pólitískt skipuð sem er frábrugðið því sem almennt er venja um sjálfseignarstofnanir.  Hvers vegna löggjafinn valdi þessa skipan er ekki til umræðu hér, en sjálfsagt er að huga að því hvort önnur leið geti ekki verið heppilegri. Þetta er ekki síst mikilvægt fyrir þær sakir að Spron sjóðurinn verður fyrirmynd annarra sjóða sem líklega verða stofnaðir á næstu árum við breytingar á öðrum sparisjóðum landsins.  Rannsóknir erlendis sýna að því sjálfstæðari sem slíkir sjóðir eru því líklegri eru þeir til að geta haft veruleg áhrif til framfara í samfélaginu.  Við rekstur sjóðsins er mikilvægt að hvergi verði hvikað frá faglegum sjónarmiðum. Við ráðningu stjórnenda og ráðgjafa verður að taka mið af þekkingu þeirra á viðfangsefnum sjóðsins og hvort þeir hafa þann skapandi huga sem þarf til að finna þessu nýja afli raunverulegt hlutverk í samfélaginu. Síðast en ekki síst hlýtur það að vera verkefni stjórnenda að móta stefnu um verkefni sjóðsins og bera uppi málstaðinn til framtíðar og hvaða hlutverk sjóðnum er ætlað í hinu stærra, samfélagslega samhengi.   

Framtíð Spron

Líklegt má teljast að hlutafélagið Spron taki breytingum og jafnvel sameinist öðrum fjármálafyrirtækjum þegar fram líða stundir.  Saga Spron er um margt merkilegt ekki síst fyrir þær sakir að sparisjóðurinn hefur frá upphafi látið sig samfélag sitt varða og er menningarsjóður Spron einn sá elsti í landinu.  Spron nýtur virðingar í samfélaginu og hefur árum saman átt hvað ánægðustu viðskiptavinina samkvæmt ánægjuvog Gallups.

Hvað sem verður um Spron hf. er ljóst að takist að standa faglega að stofnun hins nýja sjóðs mun orðspor og arfleifð Spron lifa áfram og verða mikilvægur aflvaki nýsköpunar í menningu og mannúð á Íslandi. 
Höfundur starfar í listum og er viðskiptavinur Spron  

Mega flottar stelpur!!!!

Ég fylltist enn meira stolti og gleði yfir frammistöðu íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í kvöld en ég geri þegar "strákarnir okkar" í handbolta sigra í leikjum.  Í þetta sinn bættist "kvenfrelsisgleðin" við því þessa dagana hefur komast íslenskur kvennafótbolti á annað stig -  ekki síst fyrir þær sakir að þær hafa fengið þjóðina í lið með sér, aldrei fleiri áhorfendur á vellinum, en fleiri horfðu heima í sófa - nöfnin þeirra hljóma, við erum að læra þau, um þær er talað!!!! Ýmsir hafa orðið að éta ofan í sig orð sín um kvennafótbolta síðustu daga og gaman að sjá hér á blogginu hversu margir eru tilbúnir til að verða "betri" menn. 

Sæti í Evrópumeistarakeppni landsliða hefur aldrei verið "meira" í augsýn í íslenskum fótbolta og ég spyr aftur: Hvers virði er það fyrir KSÍ og Íþróttahreyfinguna í heild að eiga lið sem hefur fræðilegan möguleika á að verða Evrópumeistari í fótbolta? Hvað eru og ætla ráðamenn hreyfingarinnar að gera til að styðja liðið á sigurbraut sinni?


mbl.is Fimm marka sigur Íslands á Serbum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fá stelpurnar versus strákarnir?

Gaman væri að vita hversu miklum fjármunum og orku KSÍ eyðir í landslið kvenna í knattspyrnu versus karlaliðið.  Mér skilst að þær hafi verulega möguleika á að komast á Evrópumeistaramót í knattspyrnu en þangað hafi karlaliðið aldrei komist.

Maður fær það stundum á tilfinninguna að ráðamönnum sumum í íþróttahreyfingunni finnist ennþá kvennalið í boltaíþróttum vera  einhver hliðarbúgrein sem skipti litlu máli í hinu stóra samhengi karlaíþrótta.  Stelpurnar hafa verið ófeimnar við að vekja athygli á sér og sínu starfi í gegnum óvenjulegar auglýsingaherferðir og fleira og eru óhræddar við að taka stórt upp í sig sbr. komment Ásthildar í gær um "besta íþróttaliðið á landinu." En njóta þær þess stuðning sem þær þurfa til að geta einbeitt sér að því verkefni komast á Evrópumótið?  Hvers virði er það fyrir KSÍ að eiga lið sem sem hefur fræðilegan möguleika á að verða Evrópumeistari í fótbolta?


mbl.is "Hún er ótrúlega markheppin, stelpan"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Ása Richardsdóttir
Ása Richardsdóttir

Alþjóðasinni, umhverfissinni, feministi.  Framkvæmdastjóri í listum - góð blanda af businesshugsun og ástríðu virkar best.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband