Leita í fréttum mbl.is

Fótboltavonbrigði og fleira

Horfði á fyrrihluta leiksins í ræktinni á meðan ég hljóp á brettinu og hlustaði  í útvarpinu á seinnihlutann sem ég eldaði fyrir fjölskylduna.  Get svo sem ekki sagt  að frammistaða íslenska landsliðsins hafi "inspírerað" mig til að hlaupa hraðar eða elda góðan mat, sem ég geri þó oftast.

Fyrir mér eru fótboltaleikir, handboltaleikir og jafnvel körfuboltaleikir eins og góður eða slæmur performans - geta verið jafn leiðinlegir og svekkjandi eins og illa unnar og hreint boring leiksýningar en líka geta leikirnir verið hrein snilld - líkt og sumar sýningar sem ég hef séð á leiksviði um ævina.  Verð að játa að ég er jafn mikil "þjóðernisremba" og hver annar þegar kemur að boltaleikjum, oftast er það frammistaða íslenska landsliðsins í handbolta sem fær mig til að brosa, hrópa af gleði og láta öllum illum látum.  Reyndar var það kameróníska landsliðið í fótbolta sem gladdi mig stundum mjög á árum áður, en verð að játa að þá var íslenska liðið víðs fjarri.

Þónokkrir æpa á afsögn þjálfarans á mblbloggi - ekki ætla ég að bætast í þann kór enda þekking mín á getu hans eða annarra nokk takmörkuð.  En ég velti fyrir mér hvað það er sem gerir það að verkum að fólk er svona óánægt og hvað það er sem gerir það að verkum að íslenskir karlmenn geta skarað frammúr í handbolta en , oftast ekki, í öðrum boltaleikjum?

Einhver hvíslaði því að mér einu sinni að til að við gætum orðið góð í körfubolta þyrfti að "rækta hávaxna leikmenn".  Veit ekki hvort viðkomandi átti við að bókstaflega ætti að leiða saman hávöxnustu konur og karla landsins á sérútbúinni ræktunarstöð - en allavega - þá meikar þetta sens - til að verða góður í körfubolta er gott að komast nærri körfunni, sem stendur ansi hátt.  En hvað er það sem við erum ekki að gera , í fótbolta, sem aðrar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við (og hinar sem við teljum okkur yfir hafin) eru að gera fyrir sína fótboltamenn, sem við erum ekki að gera?  Er það eitthvað?  Hentar líkamsvöxtur íslenskra karlmanna betur fyrir handbolta, snerpa þeirra, gripgeta og greind?  Er það af því að völlurinn er styttri og fleiri mörk eru skoruð?  Hentar handboltinn veiðimannasamfélagi sem vill geta fiskað oft og mikið? Eða hefur handbolta haft á að skipa greindu, velmenntuðu fólki og þjálfurum sem veit hvernig á að byggja upp  frá grunni og skapa gæði til framtíðar, en ekki fótboltinn?   Að hluta til , amk , virkar sú kenning ekki því íslensk kvennaknattspyrna stendur vel og í alþjóðlegum samanburði eru íslenskar knattspyrnukonur í góðum gír.   Hentar þá handbolti kannski frekar íslenskum körlum og fótboltinn konum?  Nei, come on, en djöf..... væri frábært ef fjármunirnir, aðstaðan og orkan sem fer á hverju ári í karlalandsliðið rynni til stelpnanna - hvert ætli þær kæmust þá?


mbl.is Íslendingar sáu aldrei til sólar í fimm marka tapleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli finnist enn eldri???

já, var einmitt að velta þessu fyrir mér með "öldnu" klerkana og tók svo eftir því að þegar búið verður að grafa upp kisturnar þar sem öldungarnir liggja væntanlega, glaðir og ánægðir, á að grafa meira, í tvær vikur!!!  Hvað ætli þau vonist til að finna þá, heilt "aldið" kirkjuþing?
mbl.is Grafir aldinna klerka finnast í Reykholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sæti á listum og ráðherrastólar

Þessi orðræða manna hér á blogginu um hver er hæfari en annar, karlar eða konur - hver er eigi frekar skilið ráðherrasæti eftir því hvar hann/hún raðast á lista, finnst mér afar einföld, ef ekki barnaleg. Vísa ég þá sérstaklega til orðræðu um Þórunni Sveinbjarnardóttur, Gunnar Svavarsson og Katrínu Júlíusdóttur.

Það er engum blöðum um það að fletta að Þórunni Sveinbjarnardóttir er langhæfust Samfylkingarþingmanna til að gegna embætti umhverfisráðherra.  Afar fátt Samfylkingarfólk myndi halda öðru fram.  Krafa almennings er, eftir hina mikla umhverfisvakningu sem við höfum upplifað á undanförnum mánuðum - að með stjórn umhverfismála fari fólk með hugsjón og umhverfisvernd að leiðarljósi.  Slík manneskja er Þórunn.  Ég minni á að hún ein sitjandi þingmanna Samfylkingarinnar greiddi atkvæði gegn Kárahnjúkum árið 2003 og hefur allan sinn pólítíska feril, sem rekja má til níunda áratugarins, er hún varð fyrsti formaður Röskvu, lagt mikla áherslu á umhverfisvernd og aflað sér yfirburðarþekkingar á umhverfismálum.  Hvorki Gunnar Svavarsson né Katrínu Júlíusdóttir hafa sýnt þann kjark og pólitísku viðspyrnu sem Þórunn hefur sýnt, í sínum pólítísku störfum.  Þar með er ég ekki að lasta þau en samanburður, er kemur að umhverfismálum, er þeim afar óhagstæður.  Ég minni líka á, fyrst talað er um sæti, að það munaði aðeins 34 atkvæðum á þeim Gunnari og Þórunni í prófkjöri í vetur og aðeins það, þó Þórunn ræki afar hógværa en málefnalega kosningabaráttu og efndi til engra kosningabandalaga. 

Það þarf meira en sterkar kosningamaskínur í pólítík - það þarf þekkingu og hugsjónir.  Allir þingmenn Samfylkingarinnar hafa nú einstakt tækifæri til að láta reyna á og sanna gildi sitt sem pólitískusar, hugsjónafólk og fólk góðra verka.  Vonandi verður hæfni þeirra, þekking og kjarkur mælikvarðinn er við vegum þau og metum, ekki hvar þau hafa raðast á lista í prófkjöri.


mbl.is Gunnar sóttist eftir ráðherraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleði, gleði, gleði !!!!

Það er yfir mörgu að gleðjast í dag - og ég ætla að leyfa mér það.  Ekki svo oft sem maður hefur glaðst jafn innilega yfir stjórnmálatíðindum.

Fyrst er að telja ráðherrastól umhverfissinnans, alþjóðasinnans, feministans og humanistans Þórunnar Sveinbjarnardóttur, vinkonu minnar.  Ég fullyrði að engin er eins vel af þeim stól komin og hún, úr hvorugum stjórnarflokknum.  Þar eignuðumst við ráðherra með hugsjón.

Svo er það gleðin yfir hugrekki Ingibjargar Sólrúnar sem sýndi og sannaði enn á ný að hún er feministi fram í fingurgóma, tæklaði allt þetta stjórnarmyndunarferli með glans og sýndi festu, öryggi, brosmildi og einlægni - og mun gera það áfram!!!

Svo er það stefnuyfirlýsingin sem virkar hið besta plagg á mig.  Ekki var gleðin síst þegar ég las sterka og afgerandi setningu um menningu og listir í inngangnum, talað um kraft, nýsköpun og menningu sem atvinnugrein.  Bravó, Bravó, Bravó !!!!!

 


Ingibjörg Sólrún veit - en veit Geir?

Til áréttingar vegna ummæla sumra um ástæður þess að skipa konur sem ráðherra.

Samfylkingin hefur frá hún var stofnuð fyrir sjö árum haft jafnréttis- og kvenfrelsissjónarmið að leiðarljósi í starfi sínu, enda er undirtitill flokksins "stjórnmálaflokkur félagshyggju, jöfnuðar og kvenfrelsis.  Samfylkingarfólk er þeirrar skoðunar að það sé farsælast og árangursríkast fyrir land og þjóð að með stjórn landsins fari fólk af báðum kynjum.  Þess vegna verður skipting kynja jöfn í ráðherraembættum Samfylkingarinnar.

Ingibjörg Sólrún veit og hefur sýnt það í verki sem borgarstjóri í Reykjavík í 10 ár að með því að fela konum völd til jafns við karla og innleiða jafnréttissjónarmið í stefnumótun stjórnvalda er hægt að minnka launamun kynjanna, breyta viðhorfum, gefa ungu fólki, konum sem körlum sterkar fyrirmyndir og í heild breyta þeirri samfélagsgerð sem við búum við.  Þess vegna kemur ekkert annað til greina í huga Ingibjargar Sólrúnar en kvenráðherrar Samfylkingar verði jafn margar körlunum.

 Ég vona að ég muni í kvöld geta sagt það sama um Geir H. Haarde.

 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: Skipting kynja í ráðherraembættum jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn kvenfrelsis !!!!!

... það rifjaðist upp fyrir mér í kvöld, er ég var að skoða blogg og stjórnmálaumræður dagsins á netinu, þegar ég ásamt fleira góðu fólki, ferðaðist um "Reykjaneskjördæmi heitið"  fyrir réttum átta árum og kynnti verðandi flokksfólki Samfylkingarinnar, þau grunn hugtök sem lágu að baki stofnun flokksins, undirtitlarnir þrír, kvenfrelsi, félagshyggja, jöfnuður.  Komandi úr Kvennalistanum, verandi orðin formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjaneskjördæmi, fannst mér mikilvægt að hrista hópinn saman sem allra fyrst en þó þannig að við viðurkenndum, skildum og virtum arflegð hvers annars.

Ég man sérstaklega eftir heitum umræðum sem ég átti í pontu við nokkrar konur úr sal í Njarðvík (sem nú er hluti af Keflavík, ekki satt?) um hvað kvenfrelsi væri eiginlega.  Við skildum sáttar en rosalega var langt á milli okkar í upphafi umræðnanna.

Nú átta árum síðar, þegar Samfylkingin er á leið í ríkisstjórn, reynir á skilning verðandi ráðherra, flokkanna sem standa á bak við þá, flokksfólks og þjóðarinnar hvað kvenfrelsi er, þýðir og getur gefið okkur öllum.  Það er mikið verk að vinna enn - en - við vitum að það er vel hægt.   Kynjasamsetning verðandi ríkisstjórnar í heild, mun skipta miklu máli upp á hvaða "kvenfrelsistrúverðugleika" hún mun hafa.  Tækifærið er þarna, það er bara að nýta það.  Ég hef tröllatrú á Sollu og vona að ég geta einnig sagt það sama um Geir!!!!


« Fyrri síða

Höfundur

Ása Richardsdóttir
Ása Richardsdóttir

Alþjóðasinni, umhverfissinni, feministi.  Framkvæmdastjóri í listum - góð blanda af businesshugsun og ástríðu virkar best.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband